Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22059
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna starfsánægju og hvaða þættir það væru sem hefðu áhrif á starfsánægju sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga í starfi sínu hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Starfsánægja skiptir miklu máli í tilveru fólks vegna þess að það eyðir almennt mjög stórum parti af lífi sínu í vinnunni. Mikilvægt er að flestir hlakki til að mæta í vinnuna, að þeim líði vel í starfsumhverfi sínu og að þeir séu metnir af verðleikum af bæði starfsmönnum og yfirmönnum. Tilgangur ritgerðarinnar er því að svara eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvaða þættir hafa áhrif á starfsánægju sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja?
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
JonaKristinValsdottir_Bs_Lokaverk..pdf | 3.57 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Útprentun og/eða afritun er óheimil nema með skriflegu leyfi höfundar. Verkið er verndað af ákvæðum höfundarlaga.