Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22064
Rannsóknin snýst um að þróa fjárhagslíkan sem nota mætti sem stoðtæki við að móta og rökstyðja fjárhagsreglu fyrir óskráð hlutafélög. Í rannsókninni, sem byggir að miklu leyti á kenningum nóbelsverðlaunahafanna Miller & Modigliani, eru færð rök fyrir vali á ákveðnum lykil fjárhagsþáttum sem eiga að liggja til grundvallar fjárhagsreglu. Tilgangurinn með þessu er að leitast við að hámarka virði hluthafa og ná yfirburða arðsemi á það fjármagn sem bundið er í félaginu. Fyrstu prófanir á líkaninu gefa góð fyrirheit um áframhaldandi þróunarmöguleika. Helstu niðurstöður eru að tæknilega gengur upp að nota líkan sem byggir m.a. á kenningum M&M sem nálgun við að rökstyðja fjárhagsreglu og sýna fram á orsakasamhengi við tiltekin markmið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ÞórðurIllugiBjarnason_BS_lokaverk..pdf | 5.9 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Útprentun og/eða afritun er óheimil nema með skriflegu leyfi höfundar. Verkið er verndað af ákvæðum höfundarlaga.