is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Hönnunar- og arkitektúrdeild / Department of Design and Architecture > Ritgerðir til BA-gráðu / BA theses (BA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22198

Titill: 
  • Vísvitandi vanþekking : siðleysi gagnvart dýrum í auglýsingum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Máltækið „vanþekking er alsæla“ er lífsviðhorf sem einkennir neytendasamfélag samtímans og hefur mikil áhrif á hegðun og neysluvenjur fólks. Við lifum í allsnægtarsamfélagi sem snýst um sölu og neyslu á fatnaði, mat, afþreyingu, fegurð, snyrtivörum og fleiru. Svo virðist sem markaðurinn þekki engin takmörk fyrir því hvað sé falt fyrir fé og virði engin siðferðileg mörk. „Vanþekking er alsæla“ á til dæmis við þegar fólk hefur ekki áhuga á að vita um uppruna varanna sem það neytir. Það er vísvitandi vanþekking (e. willful ignorance). Í þessari ritgerð er leitast við að kanna samspil vísvitandi vanþekkingar og auglýsinga, og hvernig markaðsfræðingar nýta sér slíka vanþekkingu. Áhersla er lögð á auglýsingar sem lúta að dýrum og afurðum tengdum dýrum. Kannað er hvernig auglýsingar dansa á línunni sem markar skilin á milli hins siðlega og hins siðlausa, ala á vanþekkingu og nýta sér þá almennu afstöðu um að vanþekking sé alsæla. Í því samhengi verða nokkrar hugmyndir viðskiptafræðinga og íslenskar siðareglur um auglýsingar teknar til skoðunar. Rannsakað er hvernig meðferð á dýrum til manneldis er háttað á Íslandi sérstaklega og leitað upplýsinga hjá stofnunum og aðilum sem láta sig þennan málaflokk varða. Innihaldslýsingar á matvörum eru jafnframt skoðaðar og kannað hvort og þá hvernig reynt er að blekkja neytendur með villandi upplýsingum.
    Lykilorð: siðleysi, dýraafurðir, vanþekking, óforvitni, alsæla

Samþykkt: 
  • 24.6.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22198


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Vísvitandi+vanþekking.pdf493.8 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna