Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22213
Vöruhönnun og sögur bindast sterkum tengslum sem teygja sig talsvert langt aftur í tímann. Þessi tengsl hafa þróast með árunum samhliða því sem tíðarandinn hefur breyst. Í dag stendur vöruhönnun á tímamótum og snýst ekki lengur einungis um efnislegar vörur heldur sjálfbæra hringrás og kerfishugsun. Það er því viðeigandi að athuga hvert hlutverk sagna innan vöruhönnunar er í dag og hvert hlutverk þeirra gæti verið í framtíðinni. Sögur og frásagnir hafa um árabil átt stóran þátt í því að skapa samtal. Fólk skilur sögur og uppbyggingu þeirra vel og á því auðvelt með að opna sig og eiga innihaldsríkt samtal. Með tækniframförum og auknum samskiptum á veraldarvefnum höfum við á einhvern hátt glatað ákveðinni tengingu við hið raunverulega beina samtal. Þetta skapar samskiptarof í samfélaginu og er rót margra stórra vandamála sem hönnuðir samtímans glíma við í dag og um ókomin ár. Á einn eða annan hátt þurfum við að endurvekja samskipti á raunverulegri grundu og þar sem lykillinn að samtalinu er sagan er þetta fullkomin leið til þess að gefa sögunni nýtt gildi í samhengi við vöruhönnun.
Lykilorð: sögur
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Einu sinni var.pdf | 2.37 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |