is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > ML Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22282

Titill: 
  • Íslenskar og evrópskar lagaskilareglur um stofnun og slit hjúskapar
  • Titill er á ensku Icelandic and European conflicts of law rules concerning the establishment and dissolution of marriage
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er leitast við að tilgreina og útskýra þær reglur sem gilda hér á landi og í Evrópu um stofnun og slit hjúskapar, þegar hjúskapur hefur erlend tengsl. Hjúskapur er í eðli sínu formföst stofnun og mótast réttarreglurnar á þessu sviði af ríkjandi trúarbrögðum og siðferðilegum viðhorfum í hverju landi. Réttarreglur um stofnun hjúskapar hafa lítið breyst seinustu áratugina en meiri breyting hefur hins vegar orðið á þeim reglum sem gilda um slit hjúskapar, sérstaklega í þeim löndum þar sem kaþólsk trú er ríkjandi en í sumum kaþólskum löndum var skilnaður lengi vel ekki leyfður.
    Á seinustu árum hafa orðið miklar framfarir í samræmingu lagaskilareglna á milli ríkja Evrópusambandsins í hjúskaparrétti, m.a. með setningu reglugerða um lagaval hjóna og lögsögu ríkja í skilnaðarmálum. Gilda þessar reglugerðir annað hvort milli allra aðildarríkja sambandsins eða aðeins þeirra ríkja sem eiga aðild að þeim.
    Til þess að varpa ljósi á framangreindar reglur verður í ritgerðinni farið yfir helstu réttarheimildir sem gilda um lagaskilarétt á sviði hjúskaparréttar. Skoðaðar verða viðeigandi íslenskar réttarheimildir, reglugerðir Evrópusambandsins og óskráðar meginreglur lagaskilaréttar. Þá verður dómaframkvæmd skoðuð og litið til skoðana fræðimanna á réttarsviðinu.
    Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru í þá veru að hér á landi, samanborið við Evrópu, gilda að mörgu leyti ólíkar reglur um gildi lagavalssamninga hjóna er viðkemur lögum sem gilda eiga um skilnað þeirra. Slíkir lagavalssamningar eru fullgildir á milli ákveðinna ríkja Evrópusambandsins, en ólíklegt að samningarnir yrðu teknir gildir hér á landi þar sem meginreglan er sú að íslenskir dómstólar dæmi eftir íslenskum lögum. Einnig er misjafnt hvað ríki telja vera lög heimalands hjóna þegar leysa á úr skilnaðarmáli þeirra en þetta getur skipt töluverðu máli vegna ólíkrar skilnaðarlöggjafar á milli landa. Þá eru reglur varðandi viðurkenningu erlendra skilnaðardóma milli ríkja Evrópusambandsins ekki jafn þröngar og hér á landi.

Samþykkt: 
  • 29.6.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22282


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Íslenskar og Evrópskar lagaskilareglur um stofnun og slit hjúskapar (2).pdf1.05 MBLokaður til...15.05.2030HeildartextiPDF