is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2242

Titill: 
  • Lyklavöld í eigin lífi: Innflytjendakonur og opinber þjónusta
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í kjölfar frjáls flæðið vinnuafls hafa búferlaflutningar á milli landa aukist síðustu árin og hefur íslenskt samfélag ekki farið varhluta af þeirri þróun. Fjölgun
    innflytjenda kallar á endurskoðun á þjónustu opinberra stofnana með tilliti til
    ólíkra þarfa skjólstæðinga þeirra. Félagsráðgjafar geta í krafti þeirrar heildarsýnar sem þeir búa yfir greint hvar skórinn kreppir í þjónustu við innflytjendur og stuðlað að framþróun og umbótum á þjónustunni. Tilgangur rannsóknarinnar var
    að kanna hvort tekið sé tillit til menningarmunar og stuðlað að gagnkvæmri
    aðlögun í þjónustu sveitarfélagsins Árborgar við innflytjendakonur og ung börn
    þeirra. Rannsóknin byggir á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem notast var við
    rýnihópa með innflytjendakonum. Konurnar eru allar búsettar í Árborg og eiga
    eða hafa átt börn á viðmiðunaraldri rannsóknarinnar. Niðurstöður rannsóknarinnar
    voru greindar í tvö meginþemu, það er þættir sem stuðla að gagnkvæmri aðlögun
    og þættir sem hindra gagnkvæma aðlögun. Fram kom bæta þyrfti upplýsingaflæði
    til innflytjenda í Árborg en það er ein forsenda gagnkvæmrar aðlögunar. Til þess
    þurfa heimasíður þjónustustofnana að vera ítarlegri og aðgengilegar á erlendum
    tungumálum, þýða meira fræðsluefni á erlend tungumál og nota túlkaþjónustu í meira mæli en nú er gert. Álykta má út frá niðurstöðum rannsóknarinnar að staðið sé ágætlega að þjónustu við innflytjendur í Árborg. Sníða þarf vankanta af þjónustunni til að hún sé enn skilvirkari og stuðli að gagnkvæmri aðlögun innflytjenda og sveitarfélagsins.

Samþykkt: 
  • 21.4.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2242


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Helga_fixed.pdf412.73 kBLokaðurHeildartextiPDF