Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22432
Verkefni þetta fjallar um íþróttina blak og inniheldur kennsluefni fyrir kennara, þjálfara og iðkendur íþróttarinnar. Blak er ung íþrótt á Íslandi jafnt og restinni af heiminum. Íþróttin er mjög tæknileg og því erfitt að ná tökum á henni á stuttum tíma. Best er að læra tækni hreyfingar með því að búta hreyfinguna niður, einnig er gott fyrir iðkanda að sjá hreyfingu framkvæmda. Í þessu lokaverkefni voru gerð kennslumyndbönd með grunnæfingum fyrir börn í blaki. Verkefni þetta skiptist í tvo parta, annars vegar fræðilegan hluta og hinsvegar kennslumyndbönd. Í fræðilega hlutanum er fjallað um blakíþróttina, eðli hennar og þjálfun barna í íþróttinni. Einnig er farið í tækniatriði grunntækni í blaki, það er fleygur, fingurslag og uppgjöf. Fjallað er um myndbönd við þjálfun og af hverju það er góður kostur, en börn læra mikið á að horfa á jafningja sinn, sem er tæknilega góður, framkvæma hreyfingu og herma svo eftir honum. Seinni hluti verkefnisins, kennslumyndböndin sýna framkvæmd æfinga ásamt munnlegri lýsingu á framkvæmd. Myndböndin eru ætluð til notkunar sem kennsluefni í grunnskólum og í blakþjálfun barna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Kennslumyndbönd fyrir börn í blaki Grunnæfingar.pdf | 2.6 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Forsida_Lokaverkefni.pdf | 28.71 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna |