is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22436

Titill: 
  • Stuðlar matarverð á Íslandi að heilsuspillandi mataræði?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Næring hefur á beinan og óbeinan hátt áhrif á líkamlega, andlega og félagslega heilsu. Því má færa rök fyrir því að aðstæður í nútímasamfélagi ættu að stuðla að eins heilsusamlegu fæðuvali og möguleiki er á. Í því samhengi var framkvæmd verðkönnun á ólíkum fæðuflokkum í þremur af stærstu matvöruverslunum landsins. Rannsóknarspurningarnar voru þrjár; hvort verðmunur væri á mat eftir hollustugildi, hvort stuðlað sé að óheilsusamlegu mataræði með dýru verði á hollri fæðu og hvort matarverð auðveldi almenningi að fara eftir ráðleggingum um mataræði eða sé ákveðin hindrun. Kannað var verð á hollustukörfu Manneldisráðs Íslands og borið saman við verð á grænmeti, ávöxtum, heilsusöfum, gosdrykkjum, sælgæti og kexkökum. Fundið var út meðaltal verðs á þremur vörum hvers vöruflokks til þess að finna út verðmun þeirra. Niðurstöður sýndu að grænmeti, ávextir og heilsusafar, þeir vöruflokkar sem taldir voru hollir, voru allir dýrari heldur en sami hitaeiningafjöldi í hollustukörfunni. Aftur á móti var sami hitaeiningafjöldi af gosdrykkjum, sælgæti og kexkökum ódýrari en hollustukarfan, sem voru þeir vöruflokkar sem taldir voru óhollir. Því er niðurstaðan að verðmunur er á mat eftir hollustugildi, á þann veg að stuðlað er að óheilsusamlegu mataræði og matarverð er því ákveðin hindrun fyrir fólk sem vill fylgja ráðleggingum stofnana um mataræði. Mat höfundar er að verðlag matvæla í dag stuðli að óhollu fæðuvali almennings sem kemur niður á heilsu fólks.

Samþykkt: 
  • 18.8.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22436


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð Lars.pdf697.91 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna