Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22438
Lokaverkefni þetta er handbók um markmiðssetningu sem nýst getur einstaklingum sem vilja bæta árangur sinn í íþróttum og heilsurækt sem og þjálfurum, leiðbeinendum og aðstandendum þeirra. Verkefnið er í tveimur hlutum, annarsvegar fræðilegur kafli og hins vegar handbók um markmiðssetningu. Fræðilegi kaflinn fjallar um markmið og markmiðssetningu, mikilvægi hennar og hvernig má innleiða markmiðssetningarkerfi í íþróttum og heilsurækt. Handbókin er hugsuð sem ákveðinn hugmyndabanki fyrir einstaklinga, þjálfara og leiðbeinendur sem vilja gera þjálfun sína enn markvissari og árangursríkari. Í henni er að finna upplýsingar um markmiðssetningu og einföld verkefni sem hægt er að nýta við gerð mismunandi markmiða. Tilgangur handbókarinnar er að vekja fólk sem tengist íþróttahreyfingunni til umhugsunar um mikilvægi markmiðssetningar og stuðla að öflugri notkun á henni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hagnýting markmiðssetningar í íþróttum og heilsurækt.pdf | 4.32 MB | Lokaður til...01.06.2100 | Heildartexti |