Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22509
Stærðfræði getur reynst hagnýt í daglegu lífi og er stærðfræðinám einn grundvöllur þess að lifa og hrærast í nútímasamfélagi. Þrátt fyrir mikilvægi stærðfræðinnar reynist nám í greininni mörgum erfitt af ýmsum ástæðum. Í þessari ritgerð er leitað svara við spurningunni: Hvaða þættir hafa áhrif á gengi nemenda í stærðfræði að þeirra eigin mati? Tekin voru viðtöl við þrjá nemendur sem eiga það sameiginlegt að eiga í einhvers konar erfiðleikum með stærðfæðinám. Viðtölin voru greind og niðurstöður þeirra skoðaðar í ljósi rannsókna og hugmyndafræði um stærðfræðinám og -kennslu. Helstu niðurstöður voru þær að kennari gegnir mikilvægu hlutverki í námi nemenda. Leiðir hans í kennslu og viðhorf hans til greinarinnar og nemenda virðast vera lykiláhrifaþættir á gengi nemenda í stærðfræði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerd_lokaskil_Skemman.pdf | 1.79 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |