is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22511

Titill: 
  • Lok, lok og læs og allt í stáli : umfjöllun um frjálsan og opinn hugbúnað í skólastarfi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í ritgerðinni er fjallað um frjálsan og opinn hugbúnað og að hvaða leyti hugmyndafræði frjáls og opins hugbúnaðar á heima í skólakerfinu með hliðsjón af Aðalnámskrá grunnskóla frá 2011. Skoðuð er núverandi staða frjáls og opins hugbúnaðar í skólakerfinu og kannað hvort stefna stjórnvalda í málefnum frjáls og opins hugbúnaðar hafi skilað sér inn í Aðalnámskrá Grunnskóla og þaðan inn í skóla landsins. Rætt var við fagaðila, bæði fyrrum starfsmenn Menntamálaráðuneytis og núverandi starfsmenn íslenskra skóla, til þess að fá frekari skilning á stöðu frjáls og opins hugbúnaðar hjá menntastofnunum landsins. Niðurstöður benda til þess að stefna stjórnvalda hafi ekki skilað sér inn í Aðalnámskrá grunnskóla og að litlu leyti inn í skóla landsins þrátt fyrir að margt í hugmyndafræði frjáls og opins hugbúnaðar samræmist markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla.

Samþykkt: 
  • 24.8.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22511


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Frjals_opinn_hugbunadur_skolastarf.pdf1.62 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna