Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22523
Ritgerðin fjallar um fyrstu skrefin í lestrarkennslu ungra barna og hvernig kennarar geta
komið til móts við nemendur með vandaðri og faglegri kennslu við hæfi hvers og eins.
Fjallað er um þá undirstöðuþætti sem lestur byggir á, annars vegar þætti sem eru
mikilvægir fyrir umskráningu og hins vegar fyrir lesskilning. Sérstaklega er hugað að því
hvernig nýta má forspárþætti lestrar til að finna nemendur sem eru í áhættu með að
lenda í lestrarerfiðleikum og hvernig snemmtæk íhlutun getur þjálfað lestrargetu og
jafnvel komið í veg fyrir alvarlega lestrarerfiðleika síðar. Ritgerðinni fylgja verkefni sem
nota má til að efla undirstöðuþætti lestrarnámsins við þjálfun hljóðkerfis- og
hljóðavitundar, hljóðtengingu og stafsetningu byrjenda.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lestrarkennsla_ahersla_a_snemmtaeka_ihlutun_gg&svs maí_2015.pdf | 2.49 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |