Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22527
Verkefni þetta er 10 eininga lokaverkefni til B.Ed. prófs við kennaradeild Háskóla Íslands. Meginmarkmið verkefnisins er að skoða leiki sem kennsluaðferð. Hugtakið leikur verður skýrt sem og gildi leikja í námi barna könnuð. Þróun leiks í samfélagi manna verður reifuð og sjónum beint að mikilvægi sjálfsnáms í tengslum við leiki.
Helstu niðurstöður höfundar leiddu í ljós að þrátt fyrir að Aðalnámskrá grunnskóla kveði á um að leikir séu notaðir í kennslu og börn fái tækifæri til þess að nema í gegnum leiki eiga grunnskólar langt í land hvað varðar að uppfylla þessar kröfur. Að mati höfundar er af þessum sökum afar mikilvægt að efla kennslu í gegnum leiki. Að lokum setur höfundur fram námsefni í formi leikja fyrir samfélagsfræði á miðstigi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Leikur - Gagn eða gaman.pdf | 622.36 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |