is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22616

Titill: 
  • Rekstur íbúðagistingar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Meginmarkmið þessa verkefnis er að kanna það hvort arðbært sé að fjárfesta í fasteign miðsvæðis í Reykjavík og í framhaldi leigja hana út til skamms tíma. Lítið virðist vera um rannsóknir á því hvort hægt sé að hafa hagnað af því að leigja út íbúðir sem gistipláss til innlendra eða erlendra aðila til skamms tíma. Höfundur varpar því fram rannsóknarspurningunni: „Er arðbært fyrir einstakling að fjárfesta með einum eða öðrum hætti í fasteign miðsvæðis í Reykjavík, og í framhaldi setja fasteignina í skammtímaleigu?”.
    Til þess að svara þessari rannsóknarspurningu sem best var farið í það að taka púlsinn á því hvernig skammtíma-leigumarkaðurinn stendur í dag og horfur hans í náinni framtíð. Rannsóknin einkenndist af megindlegri rannsóknarvinnu. Rannsóknin var framkvæmd með því að fara í talsverða rannsóknarvinnu og greiningu gagna úr mismunandi áttum; skýrslur frá opinberum aðilum, greiningaskýrslur frá bankastofnunum og þess háttar gögn voru einnig skoðuð. Til þess að öðlast betri innsýn á markaðinn frá sjónarhorni rekstraraðila var tekið viðtal við einstakling sem hefur langa reynslu af rekstri skammtímaleigu og einnig langtímaleigu leiguíbúða, viðtalið einkenndist af starfi hans á markaði skammtímaleiguíbúða.
    Að lokum var framkvæmd tilraun þar sem tekinn var samanburður á hagnaði þess að fjárfesta í íbúð til þess að leigja til skamms tíma og hagnaði þess að geyma jafna upphæð fjárfestingarinnar inn á lokuðum vaxtareikning.

Samþykkt: 
  • 31.8.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22616


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BSc-ritgerð-14.5.2015.pdf774.12 kBLokaður til...14.05.2036HeildartextiPDF