Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22631
Miklar tækniframfarir síðustu áratugi hafa breytt viðskiptaháttum og upplýsingaflæði milli neytenda og fyrirtækja. Aukin notkun neytenda á stafrænum miðlum hefur valdið því að starfsemi fyrirtækja hefur tekið miklum breytingum. Góð frammistaða fyrirtækja á stafrænum miðlum er farin að skipta fyrirtæki miklu máli í viðskiptaumhverfi dagsins í dag.
Viðfangsefni ritgerðarinnar var að rannsaka áhrif stafrænna miðla á almenna kauphegðun neytenda. Ritgerð þessi var skrifuð með það að markmiði að fyrirtæki geti nýtt sér innihald
hennar til þess að skilja betur áhrif stafrænna miðla á almenna kauphegðun neytenda.
Höfundur lagði í heimildarvinnu um áhrif stafrænna miðla á almenna kauphegðun neytenda.
Hann rannsakaði eftirfarandi miðla; vefsíður, samfélagsmiðla og vefverslanir. Við rannsókn á viðfangsefni ritgerðarinnar tók höfundur meðal annars viðtöl við tvo sérfræðinga á sviði
stafrænnar markaðssetningar; Jón Heiðar Þorsteinsson hjá Advania og Jessie VanderVeen hjá Tempo. Mikilvægt er fyrir fyrirtæki að geta mælt áhrif stafrænna miðla á rekstur þeirra. Í
þessari ritgerð er greint frá því hvernig fyrirtæki geta nýtt sér vefgreiningartól á hagkvæman hátt til þess að mæla árangur vefsíðna sinna og þau áhrif sem þær hafa á reksturinn. Þá voru
niðurstöður úr vefgreiningartóli AW Stats frá vefsíðu Hljóðheima ehf. greindar og túlkaðar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Áhrif stafrænna miðla á almenna kauphegðun neytenda.pdf | 3.84 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |