is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22660

Titill: 
  • Í leit að andlegri fullkomnun. Líf og starf Jóns Sigurgeirssonar 1909 til 2003
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þeir sem þekktu Jón Sigurgeirsson kölluðu hann gjarnan lífsspeking. Hann fæddist árið 1909 og ólst upp á Akureyri. Jón gekk að eiga Hrefnu Hallgrímsdóttur árið 1934 og eignuðust þau tvö börn. Árið 1951 féll Hrefna frá eftir erfið veikindi, Jón var ekkjumaður í mörg ár en árið 1983 kynntist hann ungri þýskri listakonu, Detel Aurand, og þau giftu sig í janúar árið 2001. Markmiðið hér er að kanna hvaða skilning Jón lagði í þær andlegu kenningar sem hann aðhylltist helst og hvernig sá skilningur endurspeglaðist í lífsviðhorfum hans, framkomu og kennslu. Foreldrar Jóns voru honum miklir örlagavaldar. Í æsku kynntist hann kristni, kirkju og guðspeki í gegnum föður sinn og frá móður sinni lærði hann ýmislegt sem fylgdi honum út lífið. Ungur hafði Jón hug á læknanámi en þegar það brást fór hann í tungumálanám og leit svo á að það hafi verið fyrir tilverknað forsjónarinnar að hann gerðist kennari. Jón var vinsæll kennari, notaði óvenjulegar kennsluaðferðir og beitti þar frelsinu fyrst og fremst. Fráfall Hrefnu hafði mikil áhrif á Jón og ýtti enn frekar undir áhuga hans á andlegum málum. Hann var frjálslyndur og umburðarlyndur og leit á ólík trúarbrögð sem ólíkar leiðir að sama marki. Samt sem áður var hann afskaplega trúaður og kirkjan var honum kær. Hann var formaður guðspekistúkunnar á Akureyri í fjölmörg ár og gaf mikið í starfið, segja má að kenningar guðspekinnar hafi litað flest hans viðhorf. Hann var áhugamaður um spíritisma og sálarrannsóknir, þekkti mikið af fólki með dulræna hæfileika sem hann upplifði jafnframt á eigin skinni. Þau félög sem hann starfaði í sýna glöggt hvar áhugi hans lá en flest voru þau af andlegum toga. Hugsjón Jóns fólst að miklu leyti í góðmennsku hans og hjálpsemi, ennfremur hafði hann hæfileika til að láta fólki líða betur. Eftir að Jón hætti störfum og kynntist Detel flutti hann frá heimabænum til Berlínar, en bjó jafnframt hluta úr árinu í Reykjavík. En hvað skildi Jón eftir sig? Enginn vafi leikur á því hversu mikil áhrif hann hafði á þá sem hann þekkti og starfaði með. Hann var góð fyrirmynd, sem á sinn hógværa hátt hafði áhrif með framkomu sinni og lífsviðhorfum. Hann var sannfærður trúmaður og lifði í fullri vissu um að líf væri að þessu loknu og að yfir okkur væri vakað. Segja má að allar þær andlegu stefnur sem Jón aðhylltist hafi endurspeglast í lífsviðhorfum hans og framkomu, í raun skína þær í gegn í öllu sem hann gerði.

Samþykkt: 
  • 4.9.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22660


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MAritgerd.pdf2.07 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna