Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2268
Ímynd og upprunaland vöru. Notkun Íslands í markaðssetningu Sjóklæðagerðarinnar 66°Norður
Viðfangsefni ritgerðar þessar er að skoða hvernig upprunaland vöru og ímynd þess getur haft áhrif á vöru eða vörumerki og skoða sérstaklega hvernig Sjóklæðagerðin 66°Norður notar tengslin við Ísland og ímynd landsins í markaðssetningu sinni erlendis. Rannsóknarspurningin sem leitast verður við að svara er: Hvernig er markaðssetningu Sjóklæðagerðarinnar 66°Norður háttað og hvernig fellur markaðssetningin að hugmyndum fræðimanna um notkun upprunalands og ímyndar í árangursríkri markaðssetningu? Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem markaðssetning fyrirtækisins var skoðuð með það fyrir augum að varpa ljósi á notkun tengslanna við Ísland í markaðssetningu.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að Sjóklæðagerðin 66°Norður nýtir sér tengslin við Ísland mjög víða. Vörumerkið virðist í einhverjum tilvikum nýta sér Ísland sem staðgengil við ímyndarsköpun meðal kaupenda vegna þess hve óþekkt vörumerkið er erlendis. Tengingin við Ísland er sterk í öllu markaðsefni fyrirtækisins þar sem íslensk náttúra er fyrirferðarmikil auk þess sem sterk tilvísun er í landið í öllu markaðsefni fyrirtækisins. Á heildina litið er hægt að segja að Sjóklæðagerðin 66°Norður nýti vel kosti Íslands sem upprunalands hönnunar. Merkið er lítið og óþekkt á erlendum mörkuðum og tengingin við Ísland veitir vörumerkinu sérstöðu sem er nauðsynleg til þess að ná athygli hugsanlegra kaupenda.
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| BS_Hjordis_Maria_O... .pdf | 997KB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |