Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22680
Þessi rannsókn tók fyrir innleiðingu straumlínustjórnununar í farþegarými Icelandair, sem er í fyrsta sinn sem flugfélag fer þessa leið í straumlínustjórnun. Í rannsókninni var kannað hlutverk og markmið með beitingu straumlínustjórnunar í flugumhverfi. Í rannsókninni var kannað hvernig Icelandair notar straumlínustjórnun til að draga úr sóun og auka ávinning farþega sinna sem og flugfreyja og flugþjóna. Gerð var eigindleg rannsókn með þeim sem verkefnið snerti á einn eða annan hátt sem og hagsmunaaðilum innan Icelandair, þar sem farið var yfir það sem vel gekk og annað sem betur mátti fara. Einnig var stuðst við megindlega rannsókn sem og mælingar sem gerðar voru á vettvangi. Út frá því voru ályktanir dregnar um framkvæmd straumlínustjórnunar í farþegaflugi.
Lykilorð: straumlínustjórnun, flugfélög, minnkun sóunar, auka ávinning
This research focuses on introduction of lean management into the cabin environment of an aircraft. It is based on a case study of a lean implementation project that was pioneered by Icelandair, which is Iceland’s largest airline. The research examines the background and objectives of a lean-oriented project in the context of the very specific challenges and opportunities of cabin management in the airline environment. The paper examines how Icelandair uses lean management to reduce waste and increase benefits of their passengers as well as flight attendants. The paper uses qualitative research with project members and stakeholders within Icelandair to critically evaluate the nature of project success. It also uses quantitate research and measurements done on site. From that that conclusions are drawn about the execution of lean project management in the airline industry.
Keywords: lean management, airline, waste reduction, increasing benefits
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
150429 Lokaútgáfa b.pdf | 374.07 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |