is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2280

Titill: 
  • ADHD og skólagangan. Þjónustuúrræði í framhaldsskólum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er byggð á eigindlegri rannsókn sem gerð var veturinn 2008 – 2009. Markmið hennar er tvíþætt. Annars vegar að fá innsýn í líf og líðan nemenda með ADHD á skólagöngunni með tilliti til breytinga við að fara úr grunnskóla yfir í framhaldsskóla. Hins vegar að fá hugmyndir um hvað þurfi að gera til að þessum nemendum farnist vel og falli síður frá námi í framhaldsskóla. Tekin voru sex opin viðtöl, þrjú við einstaklinga sem allir eru greindir með athyglisbrest með eða án ofvirkni og þrjú viðtöl við fagmanneskjur á þessu sviði. Einnig var gerð þátttökuathugun á ráðstefnu um ADHD. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að skólaganga nemenda með ADHD getur verið neikvæð og líðan þeirra er oft slæm. Mikið þarf að gerast í skólakerfinu til að bæta stöðu þessara nemenda og mikilvægt er að inngripin byrji snemma í grunnskóla til að þau finni fyrir auknu sjálfstrausti og öryggi þegar komið er í framhaldsskólann. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar hefur almennt orðið lítil vakning á þjónustuúrræðum innan framhaldsskólanna.

Samþykkt: 
  • 28.4.2009
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/2280


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaskjal_fixed.pdf311.59 kBLokaðurHeildartextiPDF