is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22815

Titill: 
  • Allir geta eldað! : Greinargerð með uppskrifta- og þrautahefti ætluðu nemendum í 5.-7. bekk
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi greinargerð, ásamt uppskrifta- og þrautaheftinu Allir geta eldað! er 10 eininga lokaverkefni til B.Ed.-gráðu í grunnskólakennarafræðum frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Heftið er ætlað sem ítarefni í heimilisfræðikennslu nemenda á miðstigi grunnskóla. Námsefni í öllum greinum, heimilisfræði þar með taldri, þarf að vera fjölbreytt og taka mið af þeim straumum sem fram koma með nýjum rannsóknum á sviði kennslufræði. Við athugun á því námsefni sem notað er í heimilisfræði kom í ljós að fjölbreytni í námsefni er ábótavant. Við gerð heftisins var reynt að hafa verkefnin sem fjölbreyttust, að samþætta námsgreinar eftir bestu getu og gæta þess að verkefnin væru skemmtileg og vektu áhuga nemenda á efninu. Eftir á að hyggja telja höfundar að þeir hafi lagt nokkuð af mörkum til að auka við framboð og fjölbreytni kennsluefnis í heimilisfræði.

Samþykkt: 
  • 10.9.2015
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/22815


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
AllirGetaEldað.pdf1.64 MBOpinnUppskrifta- og þrautahefti fyrir börn í 5.-7. bekkPDFSkoða/Opna
AllirGetaEldaðGreinargerð.pdf823.85 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna