Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22832
Lykillinn að heilbrigðum lífsstíl er 10 eininga lokaverkefni til BA-gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Verkefnið skiptist í tvo hluta, annars vegar greinargerð og hins vegar afurð í formi námskeiðs. Námskeiðið styðst við fræði greinargerðarinnar og er ætlað til lífsleiknikennslu á unglingastigi. Verkefnið er unnið sem forvarnaverkefni fyrir 8. -10. bekk til að sporna við myndun áhættuhópa á erfiðum timum æviskeiðsins, unglingsárunum. Áhættuhópar geta orðið öðrum sem og samfélaginu til ama. Okkar markmið er að fræða unglinga um fjóra áhættuhópa; átröskun, offitu, tölvufíkn og áfengis- og vímuefnaneyslu. Fræðslan verður allt frá mikilvægi hreyfingar og svefns, mikilvægi næringar og rétts mataræðis, alvarleika þess að eyða of miklum tíma fyrir framan tölvuskjáinn, afleiðingar internet-eineltis, tölvleikjafíknar, áhrifa og einkenna áfengis og vímuefna og umhirðu líkamans. Áhersla verður lögð á tómstundarmenntun sem talið er eitt af lykilatriðum til að finna sér jákvæðar og uppbyggilegar tómstundir í frítíma sínum og sporna gegn því að unglingar leiðist út í áhættuhegðun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lykillinn-að-heilbrigðum-lífsstí-l_greinargerð_Ragnhildur_Íris.pdf | 1.23 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Lykillinn_að_heilbrigðum_lífsstíl_Handbók.pdf | 1.54 MB | Lokaður til...05.05.2025 | Handbók | ||
umhirða-stelpna_viðauki.pdf | 17.03 MB | Lokaður til...05.05.2025 | Viðauki | ||
umhirða-stráka_viðauki.pdf | 15.85 MB | Lokaður til...05.05.2025 | Viðauki |