Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22852
Í þessari ritgerð var markmiðið að skoða þátttöku og virkni barna af erlendum uppruna í íþrótta- og tómstundastarfi. Íþróttaiðkun er talin jákvæð leið fyrir ungmenni til að efla andlega vellíðan sína og mynda ný vináttutengsl og er ekki síst mikilvæg fyrir börn innflytjenda.
Rannsókn þessi var gerð í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og var rannsóknarsniðið viðtöl við ungmenni á aldrinum 13–16 ára sem eiga foreldra sem eru báðir innflytjendur. Valið var jafnt hlutfall virkra og óvirkra ungmenna í íþróttastarfi.
Helstu niðurstöður voru að öll hafa þau stundað íþróttastarf eða eru virk í íþróttum. Þó um lítið úrtak hafi verið að ræða komu niðurstöður á óvart hvað varðar virkni og þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi því öll ungmennin í hópnum höfðu stundað skipulagt eða óskipulagt íþróttastarf á einhverju tímabili og þau töldu slíka þátttöku mikilvæga. Reynsla ungmennanna og aðlögun að íslensku skólakerfi er einnig frekar jákvæð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LOKASKIL Til Skemmunar.pdf | 813.21 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |