Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22860
Ritgerð þessi fjallar um foreldrasamstarf á leikskólum og hvaða ávinning er hægt að hafa af því auk þes sem skoðað verður hvaða hindranir geta staðið í veginum. Rannsóknir hafa sýnt að ef farsælt foreldrasamstarf byrjar í leikskóla hefur það jákvæð áhrif á námsframvindu barna síðar á skólagöngu þeirra. Lykillinn að góðu samstarfi er að traust ríki á milli foreldra, barna og starfsfólks leikskólans. Þetta verður skoðað og rýnt í lög og sögu leikskólans sem og rannsóknir sem viðkoma þessum málaflokki. Þetta efni snertir barnið, foreldra og starfsmenn leikskóla og þess vegna er mikilvægt að hlúa vel að því.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
bed_lokaritgerd_hmg_rvg.pdf | 1.94 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |