Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2287
Fordómar eru fyrirfram ákveðnar skoðanir á einstaklingi eða hópi. Fordómar tengjast við staðalímyndir hvort sem þær eru jákvæðar eða neikvæðar. Þess vegna er hægt að segja að staðalímyndir séu í raun grundvöllur fordóma. Þegar hugsað er um fordóma hugsa flestir um kynþáttafordóma en þeir hafa verið mest áberandi í umræðunni síðustu ár. Hins vegar einskorðast fordómar ekki við kynþætti heldur geta þeir beinst að hvaða minnihlutahópi sem er. Fordómar í garð fatlaðra hafa verið minna áberandi í umræðunni en þeir hafa samt sem áður verið til staðar. Það að loka einstaklinga inn á stofnunum og framkvæma fjölda ófrjósemis aðgerðir er dæmi um slíkt. Samkynhneigðir hafa líka barist við sína fordóma sem hafa verið leyndir en mjög grimmir. Sú sýn var uppi á árum áður að samkynhneigð bryti gegn staðlaðri ímynd kjarnafjölskyldunnar. Það var ekki fyrr en á seinni hluta áttunda áratugs síðustu aldar sem fyrsti maðurinn kom úr felum á Íslandi og hefur barátta samkynhneigðra vaxið og dafnað eftir því.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerdin heild_fixed.pdf | 533.49 kB | Lokaður | Ritgerðin - heild | ||
IN_fixed.pdf | 365.93 kB | Lokaður | Efnisyfirlit, inngangur, meginmál, lokaorð og heimildaskrá | ||
ttur_fixed.pdf | 219.41 kB | Opinn | Forsíða og útdráttur | Skoða/Opna |