Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22881
Þetta verkefni er lokaritgerð til BA-prófs í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Verkefnið er heimildaritgerð um viðburði, viðburðastjórnun og ungmenni. Með fræðilegri umfjöllun eru þeir áhrifaþættir greindir sem felast í viðburðum og þátttöku í viðburðastjórnun, einkum með tilliti til menntunar og þroska ungmenna. Leitast er við að varpa ljósi á það hvað felst í hugtökunum viðburðastjórnun og leiðtogafærni og hvaða þýðingu það hefur þegar að ungmenni eru virkjuð til þátttöku í skipulögðum viðburðum. Í því samhengi er mikilvægi leiðbeinandans dregið fram sem getur meðal annars stuðlað að auknu sjálfstrausti og virkri þátttöku ungmenna. Gerð er grein fyrir ýmsum áhrifum viðburða þar á meðal efnahagslegum, félagslegum auk pólítískra áhrifa sem og upplifun fólks af viðburðum. Sömuleiðis eru mismunandi leiðtogastílar leiðbeinanda/leiðtoga tíundaðir og sú færni sem fólk þarf að hafa til brunns að bera í því samhengi. Megin áhersla er þó lögð á þau tækifæri sem felast í þátttöku ungmenna í viðburðum.
Viðburðastjórnun, viðburðir, ungmenni, virk þátttaka, leiðtogafærni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
„Ég hefði ekki viljað gera neitt annað“ Viðburðastjórnun og ungmenni.pdf | 450.33 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |