Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/22914
Líkan Pareto-skilvirkni kveður á um að einungis samkeppnismarkaðir séu hagrænt skilvirkir (e. Economically efficient) og verður því samkvæmt ekki séð að opinber umsvif á heilbrigðismarkaði verði yfirleitt felld undir skilvirknisjónarmið af nokkru tagi. Umfjöllunin mun, um veg Pareto-greiningar (e. Pareto-efficiency), leitast við að varpa ljósi á hvort og þá mögulega hvernig sjónarmið um heilbrigðisþjónustu á jafnræðisgrundvelli stangast á við skilvirkni undir formerkjum samkeppnislíkansins. Um veg tveggja velferðarkennisetninga verður sýnt fram á að opinber íhlutun á heilbrigðismarkaði er þess umkomin að hámarka ábata alls þorra samfélagsþegna í tilliti heilbrigðisþjónustu, sem hefur að leiðarljósi jafnt aðgengi samhliða því að samræmast kröfu um sem hagrænasta skilvirkni. Með öðrum orðum, opinber íhlutun á heilbrigðismarkaði gerir kleift að skapa Pareto-skilvirka stöðu, sem er önnur en skapast myndi um veg fullkominnar samkeppni á þeim markaði samkvæmt líkani þar um.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heilbrigðismarkaður og líkan Pareto-skilvirkni.pdf | 557.07 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |