Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23296
Þjálfunarskipulag í handknattleik er í sífelldri þróun sem og vísindin á bakvið þjálfun og undirbúning handknattleiksmanna fyrir átök og keppnir. Þessi þróun fylgir því að skilningur manna á líkamanum og áhrifum þjálfunar á hann er alltaf að aukast. Tímabilskipting í handknattleik veitir þjálfurum betri yfirsýn yfir ferli handknattleiksþjálfunar, markmiðasetningu og frammistöðu leikmanna. Með þessu verkefni er kynnt tímabilaskipting handknattleiks og hvernig er mögulegt að beita slíku fyrirkomulagi í uppsetningu og framkvæmd. Margir fræðimenn hafa rannsakað efni í tengslum við tímabilaskiptingu íþróttagreina, en Tudor O. Bompa hefur hvað mest rannsakað og skrifað um almenna tímabilaskiptingu í þjálfun. Efni verkefnisins er að stórum hluta byggt á rannsóknum Bompa og vísindagreinum frá tímaritinu Aspetar Sports Medicine Journal. Með þessu verkefni vill höfundur vekja áhuga á tímabilaskiptingu í handknattleik sem þjálfarar, leikmenn og aðrir áhugamenn geta stuðst við í framtíðinni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS Tímabilaskipting Handknattleiks Bergvin Gísli Guðnason lokaútgáfa.pdf | 847.53 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |