Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23366
Reifaðar eru hugmyndir um breytingar á þremur lykilatriðum við úthlutun þingsæta í kjölfar kosninga til Alþingis. Allar rúmast hugmyndirnar innan ramma núgildandi stjórnarskrár og væri því unnt að innleiða þær með breytingum á kosningalögum einum. Fjallað verður um það hvernig tryggja megi fullan jöfnuð milli þingflokka en á því varð misbrestur í kosningunum 2013. Um leið er vísað til kröfu margra, m.a. alþjóðastofnana, um að jafna þurfi vægi atkvæða eftir búsetu og bent á leiðir til þess. Að lokum er lýst því stærðfræðilega vandamáli sem felst í útdeilingu jöfnunarsæta. Viðfangsefnið er í flokki erfiðra fléttufræðilegra vandamála. Stungið er upp á nýrri aðferð sem tilbrigði við núgildandi lög.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
b.2014.10.2.3.pdf | 1.23 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |