is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23443

Titill: 
  • Áhrif lækkunar hámarksþaks á fæðingarorlofstöku karla og kynjajafnrétti
  • Titill er á ensku The Effects of Decreasing the Maximum Parental Leave Allowance on Paternal Leave Utilization and Gender Equality
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Íslenskt samfélag breytist með tímanum rétt eins og hvað annað og er fæðingarorlof þar ekki undanskilið. Markmið fæðingarorlofs er að stuðla að jákvæðri samþættingu atvinnulífs og heimilislífs sem og tryggja barni samvistir við báða foreldra sína. Í gegnum tíðina hefur fæðingarorlof verið að mestum hluta ætlað móðurinni en með nýjum lögum árið 1997 og svo aftur árið 2000 voru gerðar tilraunir til að breyta því og jafna stöðu kynjanna bæði á vinnumarkaðnum sem og heima fyrir. Áhrifin af þessu breytta fyrirkomulagi fólust í auknum fjölda karlmanna sem nýta sér sinn einkarétt, en enn er mjög sjaldgæft að þeir nýti eitthvað af sameiginlega réttinum sem mæður og feður skipta á milli sín. Í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 aftur á móti, lækkuðu hámarksgreiðslur úr fæðingarorlofssjóði sem olli því að færri karlmenn fóru að nýta rétt sinn. Niðurstöður benda til þess að fyrirvinnuhlutverk karla sé nokkuð sterkt innan samfélagsins og draga má ályktun um að staðfesta hlutverksins sé ástæða þess að karlmenn taki ekki fæðingarorlof í jafn miklum mæli og fyrir efnahagshrunið. Einnig hefur verið sýnt fram á að ef högun fæðingarorlofs verður ekki breytt frá því fyrirkomulagi sem nú er til staðar, sem ýtir undir að konur eru mun líklegri til að taka talsvart lengra fæðingarorlof, verði jafnrétti á vinnumarkaðnum ekki náð. Það er því nauðsynlegt að horfa til beggja þátta, bæði hámarksupphæða fæðingarorlofsgreiðslna sem og fyrirkomulagi orlofsins sjálfs, ef koma skal á jafnrétti milli kynjanna er varðar fæðingarorlof.

  • Útdráttur er á ensku

    Parental leave in Iceland changes over the years just like the country’s society. The goal of parental leave is to facilitate a positive work-life balance and ensure that children get to spend time with both of their parents. For the longest time, parental leave, or maternity leave, was solely considered necessary for the mother, but with new laws in 1997 and again in 2000, an attempt was made to change that, and therefore achieve greater gender equality both in the workforce as well as in homes. This new arrangement impacted the amount of men who utilized their right to parental leave, but it is still very rare that fathers use any of the common parental leave, which is meant for both parents to divide between themselves as they see fit. After the economic collapse in 2008, the maximum monetary allowance decreased drastically, causing a decrease in the amount of fathers who utilized their personal right to parental leave. The role of a male as the breadwinner is still strong in society, and one could conclude that the perserverance of this gender role could be to blame for the decrease in Iceland fathers’ utilization of their alloted parental leave time since the economic collapse. It has been proven that if the parental leave arrangements do not change from how they currently are, which encourage women to take longer parental leave than their male counterparts, Iceland will never truly reach gender equality in the workforce. It is therefore important to look at both facets, the maximum allowance in payments while on parental leave, as well as the length of the leave itself, if true equality is to be achieved in regards to parental leave.

Samþykkt: 
  • 6.1.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23443


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð tilbúin 5.jan Unnur Sylvía Unnarsdóttir PDF.pdf872.31 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing_UnnurSylvía.pdf415.16 kBLokaðurYfirlýsingPDF