Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/234
Fjallað er um vinnslu og notkun lýsis á Íslandi frá 18. öld og fram til dagsins í dag. Lýsi er ýmist unnið úr lifur eða búk fiska og notað innanlands eða flutt út. Notkunin hefur verið á ýmsa vegu; sem ljósmeti en þaðan kemur orðið lýsi, til að mýkja sjóklæðnað, til að lægja öldur og til dýra- og manneldis. Nú á dögum er lýsi tekið sem fæðubótarefni, einkum vegna A- og D-vítamíninnihalds þess og innhalds af omega-3 fitusýrum sem hafa ýmis jákvæð áhrif á heilsuna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 241.65 kB | Opinn | Heildarskjal | Skoða/Opna |