Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23692
Í þessu verkefni hefur möguleikinn á steyptum plötum sem klæðningarefni á loftræstu útveggjakerfi verið kannaður. Í stað hefðbundinnar járnabendingar er notast við basalttrefjar sem hafa verið vafðar í form nets. Efnaþol og ryðfrír eiginleiki basaltstrefja er notaður til að minnka þversnið eins og mögulegt er. Steypt voru sex sýni. Öll sýnin voru 600mm að breidd, 1000mm að lengd og 20mm að þykkt. Gerðar voru prófanir á beygjutogþoli platna ásamt rannsóknum á þrýstiþoli og frostþoli steypunnar. Niðurstöður úr beygjutogþoli eru bornar saman við útreikninga.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Steypt útveggjaklæðning með basaltbendingu.pdf | 3.64 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |