Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23693
Verkefni þetta fjallar um það hvort hægt sé að styrkja veðurkápu á forsteyptum útveggjaeiningum með því að nota basalttrefjamottu í staðinn fyrir kambstál. Þar sem basalttrefjar tærast ekki er þannig hægt að minnka steypuhulu og þar af leiðandi minnka það magn hráefnis sem annars þyrfti í framleiðsluna. Kannaður verður með tilraunum styrkur þriggja mismunandi þversniða sem innihalda basalttrefjamottu. Auk þess verður mældur styrkur og frostþol steypublöndu sem notuð var í tilraunum. Í lokin verður metið hversu mikill sparnaður gæti orðið við það að minnka þversniðið út 70mm niður í 20mm.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Guðmundur Úlfar Gíslason.pdf | 3.67 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |