Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23706
Markmið verkefnisins var að hanna kerfi til dælingar á fráflokkuðum fisk og afskurði frá fiskiðjuveri yfir í fiskmjölsverksmiðju, ásamt vali á búnaði fyrir kerfið.
Verkefnið var unnið í samstarfi við Síldarvinnsluna í Neskaupstað.
Fór fram greining á núverandi aðstæðum og þörfum verksmiðjanna beggja til flutningskerfisins og afkastagetu þess.
Niðurstöður þeirrar greiningar voru að stækka þarf flutningslögn á milli fiskiðjuvers og fiskimjölsverksmiðju.
Hönnuð var ný lögn og búnaður til dælingar valinn, ásamt því að gerðar voru tillögur að endurbótum á flutningskerfum við báða enda.
Unnin var kostnaðaráætlun fyrir heildarverkið.
Útreikningar á þrýstifalli og aðrir nauðsynlegir útreikningar voru gerðir fyrir val á búnaði. Einnig var aflnotkun hannaðs kerfis borin saman við núverandi kerfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Sigurður V Jónsson.pdf | 7.27 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
þrýstifallogafl.xlsx | 237.82 kB | Opinn | Viðauki | Skoða/Opna |