is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23727

Titill: 
  • Markaðssetning Frisbígolfs á Íslandi : markaðsáætlun fyrir Frisbígolf
  • Titill er á ensku Marketing of Disc Golf in Iceland : Marketing plan for Disc Golf
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar er að móta heildstæða markaðsáætlun fyrir Frisbígolf á Íslandi sem mun jafnframt hjálpa við að finna út hvernig hægt er að auka við iðkendafjölda íþróttarinnar á Íslandi, fyrir áhugasama aðila um íþróttina og til að hjálpa aðstandendum íþróttarinnar að búa til viðskiptahugmyndir í kringum hana sem og öðrum sem hugnast svo. Markaðsáætlunin er ekki byggð á neinni rannsókn en tekið verður viðtal við aðila tengda íþróttinni, sem og skoðaðir helstu samkeppnisaðilar á þessum markaði.
    Í byrjun verður stuttlega sagt frá sögu íþróttarinnar bæði hérlendis og erlendis og stöðu mála í dag, til að gefa lesanda smá innsýn í viðfangsefnið. Í fyrri hluta verður farið yfir öflun markaðsþekkingar þar sem farið verður yfir þær hindranir sem geta orðið á vegi við gerð markaðsáætlunar fyrir svona íþrótt og hvaða greiningartæki er hægt að nýta til að koma viðskiptahugmyndum eða tækifærum af stað í kringum íþróttina og auka fjölda iðkenda. Þar má t.d. nefna SVÓT - styrkleikar og veikleikar innra umhverfis og PESTLE sem greinir ytra umhverfi - ógnanir og tækifæri. Einnig verður skoðað Ansoff líkanið til að skoða vöxt á markaði. Samkeppnisgreining verður gerð og íþróttin staðsett á markaði. Í seinni hlutanum verður farið yfir áætlunina þar sem markaðsstefna og markmið koma fram sem og sett verður upp aðgerðaáætlun fyrir árið 2016 og svo að lokum skoðaðar mismunandi leiðir í markaðssetningu íþróttarinnar.
    Niðurstöður gefa til kynna að það er margt gott sem hefur verið gert fyrir Frisbígolf hérlendis en þó vantar alla markvissa markaðssetningu og góða markaðsáætlun til að koma íþróttinni á það flug sem hún hefur verið á út um allan heim. Með skýrri markaðssetningu og stefnu ætti íþróttin að geta blómstrað hér á landi um ókomna tíð.

Samþykkt: 
  • 10.2.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23727


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
JonSimonGislason_BS_lokaverk.pdf1.37 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna