Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/2383
Í dag starfa þrír lyfjafræðingar í 2,7 stöðugildum við Landspítala, sem veita klíníska
lyfjafræðiþjónustu. Klínísk lyfjafræðiþjónusta felur meðal annars í sér störf á ákveðnum
deildum, þar sem lyfjafræðingur tekur þátt í stofugangi og leggur sitt að mörkum í átt að
betri umsjá sjúklingsins.
Aðalmarkmið rannsóknarinnar er að meta íhlutanir lyfjafræðinga á þeim deildum LSH
sem nú þegar njóta þjónustu hennar. Með skráningu íhlutana fæst klínísk og hagræn
áhrif vinnu lyfjafræðinganna.Notast var við tvenns konar flokkunarkerfi, annars vegar
til að meta gerð lyfjatengdra vandamála og hins vegar til að meta klínísk áhrif íhlutana.
Helstu niðurstöðurnar voru þær að í flestum tilfellum var tækifæri íhlutunar
lyfjafræðings á stofugangi og voru flestar íhlutanir teknar til greina. Íhlutanir
lyfjafræðinganna tengdust í 17,4% tilfella lyfjum úr flokknum efnaskipta-og
meltingarfæralyf (A). Íhlutanirnar voru metnar sem ekkert mikilvægi - nokkuð
þýðingamiklar í 54,6% tilfella og sem þýðingamiklar í 40,5% Ekki var lagt mat á
hagræn áhrif íhlutana, þar sem nægjanleg gögn voru ekki fyrir hendi, en vísbendingar
eru um að íhlutanir lyfjafræðinga geti leitt til lækkunar á lyfjakostnaði LSH.
Næstu skref snúa að hagfræðilegu mati á íhlutunum lyfjafræðinga LSH sem veita
klíníska lyfjafræðiþjónustu. Samhliða því er hægt að leggja enn betra mat á störf
lyfjafræðinga, svo hægt sé að þróa starfsemina áfram.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
vidaukum_fixed.pdf | 3.52 MB | Lokaður | Heildartexti |