is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23870

Titill: 
  • Viðskiptaáætlun Hamborgarabúllu Tómasar í Osló
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Hamborgarabúlla Tómasar hóf starfsemi sína við Geirsgötu í Reykjavík árið 2004. Í dag eru útibúin á Íslandi orðin sjö talsins en auk þess hafa sex útibú verið opnuð erlendis, nú síðast í Osló. Í þessari ritgerð er að finna viðskiptaáætlun fyrir Hamborgarabúlluna í Osló. Horfur staðarins á norskum markaði eru kannaðar og vaxtamöguleikar vörumerkisins skoðaðir. Við áætlanagerðina var notast við þekkt markaðslíkön á borð við SVÓT-greiningu og Fimm krafta líkan Porters. Þá voru tekin viðtöl við stofnanda Hamborgarabúllunnar, stjórnendur hjá fyrirtækinu og þá aðila sem fóru upphaflega af stað með hugmyndina um að opna útibú í Noregi. Helstu niðurstöður eru þær að horfur staðarins í Osló eru almennt góðar. Hamborgarabúllan á erindi erlendis enda hafa útibú hennar í stórborgum í nágrannalöndum Noregs gengið vel. Drög að tekjuáætlun gefa til kynna að mögulegt sé að borga staðinn í Osló upp á þremur árum. Rektraraðilar Hamborgarabúllunnar í Noregi hafa áhuga á því að fjölga útibúum í landinu jafnt og þétt á næstu árum og mælir margt með því að það verði hægt. Norski skyndibitamarkaðurinn er spennandi kostur og þótt þar séu vissulega fyrir nokkrir sterkir aðilar gefur greining til kynna að pláss sé fyrir stað á borð við Hamborgarabúlluna á markaðnum.

Samþykkt: 
  • 2.3.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/23870


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hildur Vala Baldursdóttir.pdf1.64 MBLokaður til...01.12.2030HeildartextiPDF