Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/23932
Hér er fjallað um yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildir ráðherra gagnvart lægra settum stjórnvöldum. Fjallað er um á hvaða heimildum stjórnsýslusambönd byggja og hvaða reglur eiga við um samskipti milli ráðherra og undirstofnana. Því næst er stjórnsýslusambandi lögreglunnar og innanríkisráðherra lýst og hvaða yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildir innanríkisráðherra hefur gagnvart lögreglunni. Fjallað er um álit UA 22. janúar 2015 (8122/2014) þar sem til umfjöllunar voru samskipti innanríkisráðherra við lögreglustjóra á meðan rannsókn Lekamálsins stóð yfir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Olga Cilia BA Lögfræði.pdf | 417.16 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing_OlgaMargrét.pdf | 310.3 kB | Lokaður | Yfirlýsing |