Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24038
Í þessari ritgerð eru bornar saman kenningar theravada-búddisma og kristindóms í lútherskum skilningi. Innan kenninga þessara trúarbragða birtast ýmis sambærileg stef og einnig hvað varðar hugmyndir um Jesú Krist og Búdda. Fræðimenn á borð við trúarbragðafræðinginn Simon J. Joseph hafa velt fyrir sér þeim möguleika að Jesús frá Nasaret hafi ferðast út fyrir Júdeu á sínum „týndu árum“, þ.e. við 13-29 ára aldur og hafa verið uppi getgátur um að hann hafi komist austur til Indlands eða Kasmír-héraðs. Það verður því stuttlega komið inn á það hvort mögulegt sé að búddismi hafi haft áhrif á kenningar Krists. Í ritgerðinni er lögð sérstök áhersla á að athuga hvað kenningar kristindóms og búddisma eiga sameiginlegt og verður rýnt í hliðstæður ýmissa texta með textagreiningu (e. textual analysis) og samanburðaraðferð (e. comparative method). Þó að theravada-búddismi og lúthersk-kristni eigi ýmislegt sameiginlegt er engu að síður töluverður munur á þeim og verður einnig fjallað um þær hugmyndir sem aðgreina stefnurnar. Með þessu má varpa ljósi á kenningar þeirra og auka skilning okkar á þeim.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA RITGERÐ - DARRI RAFN.pdf | 524.41 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
SkanniHugvis_DarriRafn.pdf | 405.88 kB | Lokaður | Yfirlýsing |