is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24071

Titill: 
  • Stjórnmálaþátttaka homo œconomicus. Tengslin á milli lýðræðis og skynsemi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Fjölmargar kenningar hafa verið settar fram um hvernig stjórnarfari ríkja eigi að vera háttað, og eru aðferðir þeirra og áherslur eins fjölbreyttar og þær eru margar. Í hinum vestræna heimi er sú hugmynd nú orðin rótgróin að fullveldisrétturinn sé réttmæt og ævarandi eign viðkomandi þjóðar, og að almenningur, lýðurinn, eigi að ráða ferðinni – en ekki sjálfskipaðir valdsmenn. En hvernig er hægt að skipuleggja stjórnkerfi þannig að stjórnarstefnan sé í sem mestu samræmi við vilja almennings? Í þessari ritgerð verða skoðaðar nokkrar af hinum helstu lýðræðiskenningum, og kostir þeirra og gallar útlistaðir. Sumar eru grundvallaðar á nær stanslausri þátttöku borgaranna, en slíkt fyrirkomulag getur verið ýmsum vandkvæðum bundið. Aðrar kenningar byggja á afar takmarkaðri aðkomu lýðsins að mótun stjórnarstefnunnar, og er lýðræðisfyrirkomulagið þá fyrst og fremst hugsað sem aðferð til að almenningur geti á nokkurra ára fresti kosið hina hæfustu leiðtoga. Að því sögðu verður hér gengið út frá að svokölluð frjálslynd lýðræðisstefna geti öðrum fremur tryggt að samræmi sé á milli stjórnarstefnunnar og vilja almennings. Þessi tilgáta verður sannreynd með greiningu á réttmæti kenningar úr smiðju hagfræðingsins Anthony Downs, þar sem hann fjallaði um tengslin á milli lýðræðis og skynsemi innan frjálslyndrar lýðræðisstefnu.

Samþykkt: 
  • 2.5.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24071


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaskjal BA Pétur Andri Pétursson Dam.pdf514.99 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing2016.pdf302.28 kBLokaðurYfirlýsingPDF