Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24189
Í þessari greinargerð mun ég gera grein fyrir tilurð og gerð þriggja útvarpsþátta um stöðu og viðhorf til samkynhneigðra á Íslandi frá áttunda áratugnum til dagsins í dag. Á áttunda áratugnum var staða samkynhneigðra í íslensku samfélagi slæm. Látið var eins og lesbíur væru ekki til og hommar sættu barsmíðum, voru reknir úr vinnu og misstu húsnæði. Í þáttunum verður þessi saga rakin af fólki sem lifað hefur tímana tvenna þegar kemur að málefnum samkynhneigðra. Fólki sem var í fremstu víglínu baráttunnar fyrstu árin og átti sinn þátt í að breyta viðhorfum fólks með sýnileika sínum og fræðslu. Þá verður farið yfir nokkra vendipunkta í baráttu samkynhneigðra fyrir auknum mannréttindum, svo sem stofnunn Samtakanna ’78 sem stóð fyrir fræðslu í menntaskólum á níunda áratugnum og gildistöku laga um staðfesta samvist árið 1996. Sem samkvæmt viðmælendum mínum var veigamesti þátturinn þegar kom að breyttum viðhorfum samfélagsins. Þá verður farið yfir stöðu samkynhneigðra í íslensku samfélagi í nútímanum en nýlega urðu miklar deilur innan Samtakanna ’78 vegna hagsmunaaðildar BDSM á Íslandi að Samtökunum. Mörgum finnst sú umræða vera endurómur af umræðu frá gamalli tíð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
GustaArna_3.pdf | 2.37 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing_ÁgústaArna.pdf | 324.93 kB | Lokaður | Yfirlýsing |