is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24214

Titill: 
  • Samfélagsumræða, samfélagsbreytingar og stjórnmálastarf í Skagafirði 1850−1940
Námsstig: 
  • Meistara
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Í þessari rannsókn verður fjallað um hvernig samfélagsbreytingarnar sem urðu á Íslandi á árabilinu frá 1850−1940 birtust í Skagafirði. Fjallað verður um valdakerfi 19. aldar og hvernig menn seildust til áhrifa í héraði og því velt upp hvernig stjórnmálaumræða á landsvísu og stjórnmálakenningar höfðu áhrif á stjórnmálastarf. Fjallað verður um uppbyggingu þéttbýlis á Sauðárkróki, gerð grein fyrir íbúasamsetningu og fjallað um mismunandi hópa fólks eða stéttir sem þar bjuggu. Í tengslum við það verður fjallað um uppgang félagshreyfinga svo sem ungmennafélaga og verkalýðsfélaga. Loks verður fjallað um hvernig stjórnmálaflokkar gerðu sig gildandi í héraðinu og átök þeirra á milli.
    Lesendum verður gefin innsýn í hugarheim íbúa Skagafjarðar. Hversdagslegar heimildir, sem íbúarnir létu eftir sig í formi bréfa, dagbóka eða annara skjala, verða notaðar til að varpa ljósi á hugmyndir íbúanna. Þá verða gerðabækur félaga og sveitastjórna, auk annarra gagna þar sem hugmyndir almennings og áhersluatriði þeirra koma fram á ólíkum tímum, notaðar jöfnum höndum. Vegna þess víða tímaramma sem ritgerðin tekur til og til að hún geti lýst samfélagsbreytingum á tímabilinu, verður í raun stiklað á steinum. Lýsandi dæmi verða tekin af einstökum málum og þau sett í samhengi við samfélagsþróun og uppbyggingu stjórnmálastarfs á því tímabili sem er til umfjöllunar.

  • Útdráttur er á ensku

    This study analyses how the social transformation, which took place in Iceland during the period from 1850 to 1940, affected one region of the country, the northern county of Skagafjörður. The social hierarchy of the 19th century will be explained, and how political debates and ideologies influenced local politics in the period. Special attention will be paid to the development of the town of Sauðárkrókur, which came into being in the late 19th and early 20th centuries, emphasizing the town’s social structure, the relations between its various social groups or classes, and the growing influence of social movements such as the youth associations and labour unions. Finally, the emerging political parties in the region, their functions, discourses, and structures, will be explored.
    By using sources describing the daily lives of the inhabitants and their ideas about themselves and their surroundings, including letters and diaries, the study sheds some light on the mental outlook of the common people of Skagafjörður. Moreover, it makes use of the minutes of various associations and local councils in the region, in addition to other primary sources revealing peoples’ ideas and interests during the various phases of the period. As the time frame of the study is fairly extensive, the focus is on a few selected themes and events, which provide an overview of the general social development and political life in the region from the mid-19th century to the beginning of the Second World War.

Athugasemdir: 
  • Sagnfræði- og heimspekideild hefur samþykkt lokaðan aðgang í tvö ár eða til 1. júní 2018.
Samþykkt: 
  • 6.5.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24214


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Samfel Skag lok.pdf2.19 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing_Unnar.pdf287.99 kBOpinnYfirlýsingPDFSkoða/Opna