Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24243
Þegar fólk hugsar um hugtakið fíkn er það oftast í sambandi við neyslu vímuefna og/eða áfengis. Þó hafa rannsóknir sýnt fram á að vanabindandi hegðun geti haft sömu einkenni og vímuefnafíkn. Þessi hegðun er kölluð hegðunarfíkn og undir það hugtak fellur meðal annars snjallsímafíkn. Snjallsímafíkn felur í sér óhóflega notkun einstaklinga á snjallsímum. Snjallsímafíkn líkt og vímuefnafíkn getur haft neikvæðar afleiðingar á einstaklinga sem þjást af henni og þeirra nánustu. Vinsældir snjallsíma hafa gert það að verkum að óhóflega notkun snjallsíma er orðin sýnilegri innan samfélaga. Ástæðan fyrir því er sú að í dag ganga snjallsímaeigendur yfirleitt alltaf með símann á sér. Snjallsíminn eru einskonar færanleg tölva sem kemst í hvaða vasa sem er og býður upp á tölvuvirkni og internettengingu. Snjallsímafíkn er nýlegt hugtak og fáar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu viðfangsefni. Í þessari ritgerð verður fjallað um fyrirliggjandi þekkingu á því sem kallað hefur verið snjallsímafíkn. Tilgangurinn er að skoða hvaða áhrif snjallsímafíkn hefur bæði á einstaklinga og samfélög.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Snjallsímafíkn. Staða þekkingar..pdf | 595.46 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |