is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24249

Titill: 
  • Siðfár á Íslandi? Samskipti íslenskra kvenna og erlendra hermanna á hernámsárunum 1940-1945
Námsstig: 
  • Bakkalár
Efnisorð: 
Útdráttur: 
  • Af og til virðast samfélög standa frammi fyrir svokölluðu siðfári (e. moral panic). Það er þegar ákveðið ástand, atburður, einstaklingur eða hópur einstaklinga sýnir af sér einhverskonar hegðun sem talin er ógna grunngildum samfélagsins og vekur þannig upp hörð viðbrögð víðsvegar í þjóðfélaginu.
    Þann 10. maí árið 1940 var Ísland hernumið af Bretum. Ekki leið á löngu þar til samskipti íslenskra kvenna við breska hermenn voru harðlega gagnrýnd og fordæmd í fjölmiðlum og gripið var til fordæmalausra aðgerða sem beindust gegn íslenskum konum. Fjallað er um siðfár út frá hugmyndum Stanley Cohen og Erich Goode og Nachman Ben-Yehuda og kenningar þeirra notaðar sem greiningartæki á atburði í íslensku samfélagi ,,ástandstímans“. Færð eru rök fyrir því að umfjöllun fjölmiðla, fordæming siðapostula, aðgerðir stjórnvalda og viðbrögð almennings við meintri ógn hafi komið siðfári af stað.

  • Útdráttur er á ensku

    Every now and then societies are confronted by so called moral panics. Moral panic is a situation, event, individual or a group of people that behave in a certain way that is considered a threat to society´s moral fabric, hence evoking harsh reaction in different parts of society.
    May 10th 1940 Iceland was occupied by Britain. Soon the relations of Icelandic women to British soldiers were harshly criticized and condemned in the media and unheard of measures were taken. Moral panic will be addressed in relation to the writings of Stanley Cohen, Erich Goode and Nachman Ben-Yehuda and their theories will be used to analyze events in the Icelandic society of the "situation". It will be reasoned that the media’s coverage, the condemnation of moral entrepreneurs, the action of the government and the publics’ reaction did indeed bring moral panic about.

Samþykkt: 
  • 6.5.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24249


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaskjal pdf.pdf264.35 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing_UnaLind.pdf333.78 kBLokaðurYfirlýsingPDF