is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24324

Titill: 
  • „Fífli finnst gaman að ríða á drasli.“ Um beygingu karlmannsnafna sem enda á -il-, -ul- eða -al-
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er lögð til BA-prófs í íslensku sem öðru máli við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er fjallað um sterk tvíkvæð karlkynsorð sem enda á -il-, -ul- eða -al- og beygingu orðanna. Slík orð eru stundum mynduð með viðskeyti af sagnorðum eða nafnorðum en alls ekki alltaf. Aðalviðfangsefni ritgerðarinnar er tvíkvæð karlmannsnöfn sem enda á -il-, -ul- eða -al-. Í mannanafnaskrá 1. janúar 2016 voru sextán karlmannsnöfn sem hafa þessar endingar.
    Farið er yfir fræðilegar forsendur í öðrum kafla. Fjallað er almennt um beygingu sterkra tvíkvæðra karlkynsorða sem enda á -il-, -ul- eða -al-. Aðaláherslan er á þágufall eintölu. Auk þess er getið um orðmyndunaraðferðir og viðskeyti. Í þriðja kafla eru sextán karlmannsnöfn skoðuð ein og sér. Sagt er frá beygingu, uppruna og myndun þeirra. Að lokum í fjórða kafla eru þessi nöfn borin saman við nokkur nýyrði og tökuorð. Sérstaklega er rætt um beygingu nafnsins Kristall sem er frekar flókin. Í ljós kemur að til eru fleiri orð sem enda á -il-, -ul- eða -al- en beygjast þó ekki eftir þeim reglum sem rætt var um í öðrum kafla.
    Í mínum huga hefur beyging orða verið eitt mikilvægasta atriðið við að læra íslensku sem annað mál, jafnt í íslenskunáminum í háskólanum sem og utan kennslustofu. Tilgangur þessarar ritgerðar er að skoða einn lítinn part af íslenskri beygingarfræði.

Samþykkt: 
  • 9.5.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24324


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA ritgerð Sunna Strandsten.pdf524.94 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing_Sunna.pdf312.69 kBLokaðurYfirlýsingPDF