is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24340

Titill: 
  • „Jafnaðarmannaflokkur Íslands - hvenær kemur þú?“ Áhrif endaloka kalda stríðsins á sameiningu íslenskra jafnaðarmanna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Við upphaf tíunda áratugarins mátti merkja aukna viðleitni á meðal íslenskra jafnaðarmanna til þess að bylta flokkakerfinu og mynda nýjan stjórnmálaflokk sem gæti sameinað vinstrimenn í breiðfylkingu félagshyggjufólks. Hlutverk flokksins yrði fyrst og fremst það að mynda mótvægi gegn Sjálfstæðisflokknum. Markmið þessarar ritgerðar er að kanna hvort endalok kalda stríðsins hafi haft afgerandi áhrif í þessu sameiningarferli. Íslensk utanríkisstefna hafði lengi verið uppspretta átaka milli Alþýðuflokksins og Alþýðubandalagsins en fall múrsins hafði í för með sér stórstígar breytingar á heimsmyndinni sem gáfu til kynna að vægi hernaðar og herstöðva færi minnkandi.
    Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að endalok kalda stríðsins hafi vissulega haft jákvæð áhrif á sameiningarferlið og mátti þar merkja aukna viðleitni leiðtoga A-flokkanna til þess að hefja viðræður um sameiningu A-flokkanna. Deilur vinstriflokkanna um utanríkismál hurfu þó ekki algjörlega af sjónarsviðinu með endalokum stríðsins en í stað ágreinings um herstöðina og aðild Íslands að NATÓ var tekist á um evrópska samvinnu á sviði efnahagsmála og hernaðar. Hin eiginlega sameining jafnaðarmanna hófst með framboði Nýs vettvangs sem bauð fram í borgarstjórnarkosningum árið 1990 og var ætlað að leiða saman Alþýðuflokkinn og Alþýðubandalagið. Ætlunarverkið tókst þó ekki fyrr en fjórum árum síðar þegar Reykjavíkurlistinn var myndaður en þá náðist samkomulag á milli Nýs vettvangs, Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins, Framsóknarflokksins og Samtaka um kvennalista um að bjóða fram sameiginlegan lista.

Samþykkt: 
  • 9.5.2016
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/24340


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ba_ritgerd lokautgafa.pdf1.07 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing_KristjánPáll.pdf284.03 kBLokaðurYfirlýsingPDF