Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24359
Lokaritgerð þessi er unnin til BA-prófs í listfræði við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni, Viðleitni til velgengni: Hlutgerving og hagnýting kvenlíkamans í verkum Vanessu Beecroft, er farið yfir sögu birtingarmyndar kvenlíkamans í listaverkum, allt frá endurreisn til samtíma auk þess sem gerð er grein fyrir hlutverkaskipan kynjanna í listsögulegu samhengi. Fjallað er um tilurð líkamslistar og framgang þeirrar tegundar tjáningar með tilliti til femínisma og hlutgervingar kvenlíkamans. Gjörningar ítölsku listakonunnar Vanessu Beecroft eru skoðaðir og vinnubrögðum hennar og framkomu í garð fyrirsæta verkanna gerð skil. Því næst eru rök færð fyrir lögmæti listaverka hennar og gjörningar hennar bornir saman við gjörninga spænska listamannsins Santiago Sierra. Að lokum er verkum hennar fundinn staður innan femínísks samhengis í samtímanum. Niðurstaða ritgerðarinnar er að endingu sú að háttalag Beecroft gagnvart fyrirsætum sínum einkennist af harðsvíruðu valdaójafnvægi auk þess sem verk hennar viðhalda rótgrónum hugmyndum samfélaga um heimild annarra til hlutgervingar og hagnýtingar kvenlíkamans.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Viðleitni til velgengni.pdf | 26.33 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing_HeiðurAnna.pdf | 317.64 kB | Lokaður | Yfirlýsing |