Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24396
Röskun á einhverfurófi tekur á sig ýmsar birtingarmyndir og einstaklingar með slíka röskun búa við skerta færni á þremur sviðum: í tengslum við mál og tjáskipti, varðandi félagsleg samskipti og sérkennilega, áráttukennda hegðun. Margt getur breyst í lífi fjölskyldunnar þegar barn með slíka röskun tilheyrir henni en rannsóknir hafa sýnt fram á að foreldrar barna með röskun á einhverfurófi upplifa meira álag og streitu en aðrir foreldrar. Ritgerðin er heimildaritgerð og við gerð hennar var leitast við að svara spurningunni: Hvaða áhrif hefur það á fjölskylduna þegar í henni er barn með röskun á einhverfurófi? Niðurstöður sýna að sé barn í fjösklyldunni með röskun á einhverfurófi geti það haft bæði jákvæð og neikvæð áhrif á foreldrana sjálfa, parasamband foreldra, systkini barnsins og daglegt líf allrar fjölskyldunnar. Séu foreldrar samstíga og finna fyrir stuðningi hefur það jákvæð áhrif á líf fjölskyldunnar.
Lykilhugtök: Röskun á einhverfurófi, fjölskyldan, foreldrar, systkini, streita, félagsráðgjöf.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BAritgerð.IngibjörgBjörnsdóttir,280280-4969.pdf | 636.79 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing.Ingibjörg.Björnsdóttir.pdf | 208.46 kB | Lokaður | Yfirlýsing |