Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24401
Í þessari ritgerð verður fjallað um sögu rokktónlistar í Kína og skoðað hvaða áhrif þessi framandi tónlistarstefna hafði á ungmenni þjóðarinnar. Þegar talað er um rokk í Kína þá er eitt nafn sem yfirleitt kemur upp á yfirborðið: Cui Jian 崔健. Fjallað verður sérstaklega um hlutverk hans í innleiðingu rokksins og þýðingu hans fyrir kínverskt samfélag. Einnig verður gert grein fyrir þeim sögulegu þáttum sem komu til með að móta einstaklinginn á valdaárum Mao Zedong 毛泽东. Kínversk ungmenni upplifðu skelfilega hluti á þessum tímum vegna fjöldaherferða sem Mao og Kommúnistaflokkurinn stóðu fyrir. Við þá atburði skapaðist kynslóð sem var önug út í stjórnvöld og leitaði leiða til þess að fá útrás fyrir tilfinningum sínum. Þar kemur rokkið í myndina, það hafði gríðarlega mikla þýðingu fyrir kínversk ungmenni í kjölfar menningarbyltingarinnar og hjálpaði þeim að fá útrás fyrir tilfinningum sínum. Að vísu hefur mikill skuggi ætíð fylgt rokktónlist, og það óháð staðsetningu. Í þessum skugga leynast miklir fordómar. Leitast verður við að horfa framhjá þessum skugga og sýna fram á sögulega merkingu rokktónlistar í Kína. Óneitanlega er hægt að segja að rokk hefur breytt lífi gríðarlega margra, sama hvort horft sé til vestursins eða Kína.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Saga rokks í Kína.pdf | 563.5 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing_Eyþór.pdf | 292.21 kB | Lokaður | Yfirlýsing |