Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24528
Ritgerð þessi er greining á ungu sprotafyrirtæki, Sóley Organics ehf. Markmiðið er að greina fyrirtækið frá stofnun þess, kanna fjárhagsstöðu, horfa til tækifæra og gera rekstaráætlun fyrir árin 2016 til 2018. Vörur Sóley Organics ehf. hafa náð góðri kjölfestu á markaði á Íslandi, en stefnan er nú sett á sókn á stærri alþjóðlega markaði.
Fjallað verður um þróun fyrirtækisins frá upphafi, vörurnar og hagsmunaaðila þess. Umhverfi fyrirtækisins verður greint með hjálp SVÓT-greiningar og PEST-líkansins. Markaðurinn sem fyrirtækið keppir á hérlendis og á alþjóðavísu verður rannsakaður. Reksturinn frá upphafi til dagsins í dag verður greindur og í kjölfarið gerð rekstaráætlun fyrir næstu þrjú ár. Að lokum verður greiningin dregin saman og niðurstöður birtar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_Ritgerð_GigjaHilmarsdottir.pdf | 1.16 MB | Lokaður til...24.05.2026 | Heildartexti |