Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/24563
Tekjustýring er eitt mikilvægasta verkfæri sem fyrirtæki, sem bjóða upp á vöru eða þjónustu sem rennur út eftir ákveðinn tíma, geta notað. Fyrirtæki beita tekjustýringu til að greina og stýra eftirspurn á vöru eða þjónustu. Verðlagning er einn þáttur tekjustýringar en mikilvægt er að verðleggja rétt svo eftirspurn á vörunni eða þjónustunni haldist. Flugfélög hafa beitt tekjustýringu í marga áratugi og hafa fleiri fyrirtæki með svipaðar vörur og þjónustu tekið upp þessa aðferð til að stýra eftirspurn og hámarka tekjur í rekstri.
Meginmarkmið verkefnisins var að svara spurningunum “Hvað er tekjustýring?" og "Hvernig beita flugfélög tekjustýringu í rekstri sínum?” Til þess að komast að því hvað felst í tekjustýringu verða helstu atriði hennar greind og leitast við að skilgreina hana á sem einfaldastan hátt. Notast var við heimildir um tekjustýringu almennt og hvernig flugfélög hafa beitt henni í gegnum árin. Einnig var tekið viðtal við starfsmann hjá tekjustýringu Flugfélags Íslands í þeim tilgangi að dýpka enn fremur skilning minn á tekjustýringu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskil-tekjustyring.pdf | 517.83 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |